|
Þú hefur sagt mér hversu heitt þú annst mér, |
|
við hittumst alltaf stundum þó við mælum okkur aldrei mót. |
|
En hvernig átti ég að orða þetta fyrir þér? |
|
Ég ætlaði ekki að særa þig, en þú ert bæði feit og ljót. |
|
|
|
Feitar konur. Unna mér í tonnavís. |
|
|
Feitar konur. Síst af öllum konum kýs. |
|
|
Feitar konur. Framar öllum vonum, |
|
|
ég er ofsóttur af feitum konum. |
|
|
Þú skilur ekki hvernig nokkur skapaður maður þig stenst, |
|
en skelltir þér þó að endingu megrun í. |
|
Svo gekkstu til mín og spurðir: „Hef ég ekki grennst.“ |
|
„Getur verið en þú ert akfeit fyrir því.“ |
|
|
|
|
Á hinum víðáttumiklu veiðilendum þínum, |
|
villst hefur annars margur ágætur sveinn. |
|
Svo gerðirðu þér leik að hugsunarhætti mínum, |
|
og hækkaðir tölu særðra og fallinna um einn. |
|
|
|
|
Létt fórstu með að leggjast á mig, |
|
ég lét mig hafa'ðað og skipti sköpum. |
|
En mér finnst ef að miðað er við þig, |
|
að menn séu komnir af flóðhestum en ekki öpum. |
|
|
|
Feitar konur. Unna mér í tonnavís. |
|
|
Feitar konur. Síst af öllum konum kýs. |
|
|
Feitar konur. Framar öllum vonum, |
|
|
|
|
Oooohhh - Spik, spik, spik, spik, spikfeitar. |
|
|
Ooohhmm - Sílsaðar konur, sílsaðar konur. |
|
|
|