|
|
Hverja helgi um hádegisstund |
|
Herrans þjónar oss tóna guðs dóm. |
|
Ef þú öreigi ferð á hans fund, |
|
færðu svarið með himneskum róm: |
|
|
|
Bíttu gras! blessuð stund |
|
|
bráðum nálgast, og sæl er þín bið. |
|
|
Þú færð föt, þú færð kjöt |
|
|
þegar upp ljúkast himinsins hlið. |
|
|
Liggur krjúpandi Hjálpræðisher, |
|
halelúja með bænum og söng. |
|
Gefðu krónu, þá kennir hann þér |
|
hversu leiðin til himins er þröng. |
|
|
|
Bíttu gras! blessuð stund ... |
|
|
Ef þér finnast þín laun vera of lág |
|
til að lif' eins og manneskju ber, |
|
þér er hótað með helvíti þá, |
|
sagt hve hólpinn sá fátæki er. |
|
|
|
Bíttu gras! blessuð stund ... |
|
|
Komið öreigar, erfiðismenn, |
|
heimtum öryggi, réttlæti og frið. |
|
Það er víst, að nú sigrum við senn, |
|
og við segjum við auðvaldsins lið. |
|
|
|
Bíttu gras! blessuð stund ... |
|
|