|
|
|
|
Viltu með mér vaka’, er blómin sofa |
|
vina mín og ganga suður að tjörn? |
|
Þar í laut við lágan eigum kofa, |
|
lékum við þar okkur saman börn. |
|
Þar við gættum fjár um fölvar nætur |
|
- fallegt var þar út við hólinn minn. - |
|
- Hvort er sem mér sýnist að þú grætur? |
|
Seg mér: Hví er dapur hugur þinn. |
|
|
|
|
|
|
Hví ég græt? - Ó, burt er æskan bjarta |
|
bernsku minnar dáin sérhver rós! |
|
- Það er sárt í sínu unga hjarta, |
|
að sjá hve slokkna öll þín skærstu ljós! |
|
Ó, hve fegin vildi’ ég verða aftur |
|
vorsins barn og hérna leika mér; |
|
nú er lamað þrek mitt, þrotinn kraftur, |
|
þunga sorg á herðum mér ég ber. |
|
|
|
|
|
|
Hvað þá? Gráta gamla æskudrauma, - |
|
gamla drauma, - bara óra’ og tál. |
|
Láttu þrekið þrífa stýristauma. |
|
Það er hægt að kljúfa lífsins ál. |
|
Kemur ekki vor að liðnum vetri? |
|
Vakna’ ei nýjar rósir sumar hvert? |
|
Voru hinar fyrri fegri, betri? |
|
- Feldu’ ei tár en glöð og hugrökk vert. |
|
|
|
|
|
|
Þú átt gott: þú þekkir ekki sárin! |
|
þekkir ei né skilur hjartans mál. |
|
Þrek er gull en gull eru líka tárin, |
|
guðleg svölun hverri þreyttri sál. |
|
Stundum þeim, er þrekið prýddi’ og kraftur |
|
þögul, höfug féllu tár um kinn. - |
|
En sama rósin sprettur aldrei aftur, |
|
þó önnur fegri skreyti veginn þinn! |
|
|