|
|
Heimaklettur heilsar hress að vanda , |
|
Herjólfsdalur býður góðan dag. |
|
Gleði ríkir milli álfa og anda |
|
er manna á meðal raula lítið lag. |
|
|
Er kvölda tekur færast yfir mannskapinn |
|
Undurfagrir straumar, ljúfur blær. |
|
Ástin kviknar, ljósadýrð um himininn |
|
kveikt í hjörtum okkar alltaf fær. |
|
|
Brekkusöngur, bálkösturinn, allt á sínum stað. |
|
Blíðar meyjar, vaskir sveinar saman fylgjast að. |
|
Rómantík í rökkurhúmi varir ár og síð |
|
þegar rjóðir vangar bera við frá bjarma á Þjóðhátíð |
|
|
Morgunroðinn mókir yfir dalnum |
|
meðan yfir tjöldin færist ró. |
|
Ævintýr í Heimaeyjarsalnum |
|
byrja síðan seinna um þessa nótt. |