Ég vil fá mér kærustu sem allra allra fyrst. |
|
En ekki verður gott að finna hana, |
|
því hún skal hafa kinnar eins og hrútaber á kvist |
|
og hvarmaljósin björt sem demantana |
|
|
|
Hún skal vera fallegust af öllum innan lands |
|
|
og iðin við að spinna og léttan stíga dans |
|
|
og hún skal kunna’ að haga sér hið besta. |
|
|
Þær eru flestar góðar meðan unnustinn er nær |
|
en oss þær eru vissar til að blekkja |
|
en ég vil fá mér eina þá sem ei við öðrum hlær |
|
sem elskar mig og bara mig vill þekkja |
|
|
|
og hún skal líka finna beztu hugarró hjá mér |
|
|
ef húsi mínu færir hún iðni og dyggð með sér |
|
|
og stóra, fulla kistu beztu klæða. |
|
|
Og ef ég svo í eina næ jafnt alveg sem ég vil |
|
þá óðara til brullups skal ég feta |
|
og sveitafólk mitt veislu fær sem vantar ekkert til |
|
og vín og hrokafylli sína að éta |
|
|
|
og þar skal vera dans og drykkja daga þrjá í röð |
|
|
hin dýra ást oss gjörir í hjörtunum svo glöð |
|
|
en til þess verður ofurlitlu að eyða. |
|