|
|
Ég sé þig þreytta við barnavagninn baksa heim á kvöldin |
|
þar bíða bréf með rukkunum sem birta ógreidd gjöldin |
|
Er lífið aðeins fallinn víxill oft þau spyrja sig |
|
Þau reyna að stefna í rétta átt - En hvað um mig og þig? |
|
Er lífið aðeins fallinn víxill oft þau spyrja sig |
|
Þau reyna að stefna í rétta átt - En hvað um mig og þig? |
|
|
Á laugardögum eftir klukkan átta lög á fóninn |
|
lamaður í alkóhóli landinn gefur tóninn |
|
Og sólarlandalögin leikur fyrir sjálfan sig |
|
Svo gengur fólk til náða - Hvað um mig og þig? |
|
Og sólarlandalögin leikur fyrir sjálfan sig |
|
Svo gengur fólk til náða - Hvað um mig og þig? |
|
|
Íbúð, bíl, öll lífsins gæði allir vilja meira |
|
til þess þarf að vinna hörðum höndum tveim |
|
Allir lenda einhvern tíma einir úti í horni |
|
þar sem enginn lengur vita vill af þeim |
|
Enginn lengur vita vill af þeim |
|
|
Fjölskylda sem fyrirtækin mörgum vex í augum |
|
fjölmörg dæmi um manneskjur sem farið hafa á taugum |
|
Ást og gömul eigingirni er lengi söm við sig |
|
allir eru að elskast - Hvað um mig og þig? |
|
Ást og gömul eigingirni er lengi söm við sig |
|
allir eru að elskast - Hvað um mig og þig? |
|
|