(8 sinnum þessi hljómagangur - ofarlega á hálsi í þvergripum) |
|
|
|
|
|
Í blokkinni inn í Gnoðarvog sumarið sextíu og átta |
|
sat ég upp í rúmínu nýbúinn að hátta |
|
|
„Lög unga fólksins“ hljómuðu svo hátt út um gluggann |
|
Heimurinn var blokkin mín ég lék mér þar við skuggann |
|
|
Síða hárið var draumurinn en ég var dæmdur til að vera með bursta |
|
Dagbjartar nætur fóru í að lesa Basil fursta |
|
Kaninn var í Víetnam, Mogginn hélt með honum |
|
en ég hafði fengið áhuga á berum konum |
|
|
Pabbi striplaðist vankaður svo voðalega þunnur |
|
það voru menn í höfði hans berjandi á tunnur |
|
Ég sá hann aðeins standandi þorstanum að svala |
|
með þrútin augu og sárann háls lagðist svo í dvala |
|
|
Ég lærði fljótt að pússa skó og plötu fékk að launum |
|
ég pældi í Stones á hæsta styrk og gleymdi mínum raunum |
|
Bræðurnir fór í Glaumbæ í bítlaskóm með pela |
|
en báðu mig fyrst að lofa því að ég engu mundi stela |
|
|