Mamma, ertu vakandi mamma mín? |
|
Mamma, ég vil koma til þín. |
|
Ó mamma, gaman væri að vera stór. |
|
Þá vild’ ég stjórna bæði hljómsveit og kór. |
|
|
Mamma, þú ert elskuleg mamma mín, |
|
mér finnst gott að koma til þín. |
|
En mamma, áðan dreymdi mig draum um þig. |
|
En datt þá fram úr og það truflaði mig. |
|
|
|
Þú vars drottning í hárri höll. |
|
|
Hljómsveitin! Álfar, menn og tröll, |
|
|
lék þér og söng í senn, hún var svo stórfengleg. |
|
|
Tröllin þau börðu á bumburnar. |
|
|
Blómálfar léku á flauturnar. |
|
|
Fiðlurnar menskir menn, á mandólin ég. |
|
|
|
Allir mændum við upp til þín. |
|
|
Eins og blóm þegar sólin skín. |
|
|
En þínum faðmi frá, gjafir flugu um allt. |
|
|
Flestum gekk vel að grípa sitt. |
|
|
Glaður náði ég fjótt í mitt. |
|
|
En stóll er steig ég á, stóð tæpt svo hann valt. |
|
|
Mamma, þú ert elskuleg mamma mín, |
|
mér finnst gott að koma til þín. |
|
En mamma, gaman væri að vera stór. |
|
Þá vild’ ég stjórna bæði hljómsveit og kór. |
|