Ég er búinn að vera hér í 18 ár, |
|
allt hefur sitt upphaf og endir |
|
dýrmætt er lífið og litur augna afar blá |
|
og í dauðann manninn ég sendi |
|
og í dauðann manninn ég sendi |
|
|
Fyrstu þrjú árin gerðist ekki neitt |
|
ég lokaði mig dofinn bara inn, |
|
tíminn hann leið ekki og ég gat engu breytt |
|
og ég veit dauðinn hefur fullkomið minni |
|
og ég veit dauðinn hefur fullkomið minni |
|
|
|
Á morgun á morgun opna þeir upp á gátt |
|
|
|
ég er hræddur við lífið og í hvaða helvítins átt, |
|
|
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn |
|
|
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn |
|
|
Steypa hellur, lyfta lóðum jú |
|
er það sem menn hér inni eru að gera |
|
og vakna um nætur og hvísla ástin hvar ert þú |
|
og hark’af sér og bryðja stera |
|
og hark’af sér og bryðja stera |
|
|
Aldrei sýn’ótta, ávallt vera cool |
|
alveg sam’á hverju sem gengur |
|
þótt gynið sé opið og lyktin úr því fúl |
|
skaltu muna, þú ert ekki lítill lengur |
|
skaltu muna, þú ert ekki lítill lengur |
|
|
|
Á morgun á morgun opna þeir uppá gátt, |
|
|
|
ég er hræddur og seigðumér í hvaða átt |
|
|
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn |
|
|
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn |
|
|
Ég hef séð menn koma, kolaða inn |
|
eftir keyrslu dauðans á femma |
|
stöff sem dræpi ljón, ef það tæki það inn |
|
ég hef séð dauðann í klefa lífið hremma |
|
ég hef séð dauðann í klefa lífið hremma |
|
|
Öll árin hef ég óttast, óttast það eitt |
|
kom’útí heim sem ég þekki ekki |
|
ég er fullur af sekt og ég get engu breytt |
|
og hver dagur færir mér nýja hlekki |
|
og hver dagur vætir mér nýja hlekki |
|
|
|
Og í dag, í dag opna þeir uppá gátt |
|
|
opna þeir Litlahrauns hliðin |
|
|
hvert á ég að fara og í hvaða helvítins átt |
|
|
nú þegar tíminn hér inni er liðinn |
|
|
nú þegar tíminn minn hér inni er liðinn |
|
|
nú þegar tíminn minn hér inni er liðinn |
|
|
(spilað með capo á 2.bandi) |
|