|
|
Á fyrsta sunnudegi aðventunnar |
|
ég ek til kaupmannsins í einum rykk |
|
því þó að fjárhirslurnar gerist grunnar |
|
ég geri vel við mig í mat og drykk. |
|
Ég kaupi sætabrauð og súkkulaði |
|
súpur og ávexti og kjöt og smér |
|
klyfjaður góssi burt ég held með hraði |
|
og hleð í skottið allskyns gúmmelaði |
|
þá mega jólin koma fyrir mér. |
|
|
Á öðrum sunnudegi aðventunnar |
|
alhliða hreinsunarstarf á sér stað |
|
þá söngperlur ég söngla ýmsum kunnar |
|
og síðan læt ég renna í funheitt bað. |
|
Þá allar spjarirnar ég af mér reiti |
|
og öllum deginum við þvotta ver |
|
ég skrúbba tærnar, skegg og lubba bleyti |
|
ég skef úr eyrum svona að mestu leyti |
|
þá mega jólin koma fyrir mér. |
|
|
Á þriðja sunnudegi aðventunnar |
|
andlegu hliðinni ég geri skil |
|
en til að virka skulu viskubrunnar |
|
sko vera rakir eða þarumD7bil. |
|
Það stoðar lítt að sitja einn með ekka |
|
örlögum heimsins velta fyrir sér |
|
en ég verð heimsins mesta mannvitsbrekka |
|
á meðan ég fæ bara nóg að drekka |
|
þá mega jólin koma fyrir mér. |
|
|
Á fjórða sunnudegi aðventunnar |
|
ég æði um húsið til að gera allt fínt |
|
en skreytingarnar eru ansi þunnar |
|
því árans skrautið virðist mest allt týnt. |
|
Ég skvetti sápuvatni á gólf og glugga |
|
og gref upp nokkuð heillegt sængurver |
|
við bústnum rykmaurum ég reyni að stugga |
|
og rið svo þvottinum í næsta skugga |
|
þá mega jólin koma fyrir mér. |
|
|
Loks þegar aðfanganna dag að drífur |
|
ég dreg fram spariföt og flibbahnapp |
|
svo þegar skyrtukraginn stendur stífur |
|
ég stari í spegilinn og gef mér klapp. |
|
Því jólin eru tími til að þakka |
|
og taka ofan fyrir þeim sem ber |
|
á meðan ég hef matarögn að smakka |
|
og meðan ég fæ risavaxinn pakka |
|
þá mega jólin koma fyrir mér. |
|