|
|
|
Mamma er enn í eldhúsinu, úh, húu, hú, |
|
uppgefin á þessu og hinu, úh, húhu, úh. |
|
Teygir sig í kampavínið, kælir það í drasl, |
|
á klaka setur vandamálin, áhyggjur og basl. |
|
|
Spyrðir sig í sparigallann, úh, húu, hú, |
|
sparslar fésið, reyrir mallann, úh, húhu, úh. |
|
Mamma þyrfti að sofna því mamma er svo þreytt |
|
en mamma landar engum þorskum sofi hún út í eitt. |
|
|
Mamma, mamma ætlar að djamma |
|
|
Mamma, mamma ætlar að djamma |
|
|
|
|
|
Svo ljúfsárt getur lífið verið, úh, húu, hú, |
|
hún losar sig við krakkagerið, úh, húhu, úh. |
|
Rauðum vörum litar glasið, lakkar tásurnar, |
|
lyftir barmi, þarf að toppa hinar pjá surnar. |
|
|
Af lymsku skal nú lagt á ráðin, úh, húu, hú, |
|
Hvar leynist skársta næturbráðin? úh, húhu, úh. |
|
Stundum er hún heppin en oftast fer allt í fokk |
|
Þá fer hún heim með öskupöddufullann drullusokk. |
|
|
Mamma, mamma ætlar að djamma |
|
|
Mamma, mamma ætlar að djamma |
|
|
|
|
Fengitíminn löngu liðinn, úh, húu, hú, |
|
lokametrinn skal þó skriðinn, úh, húhu, úh. |
|
Þó óbeislaðar gamlar merar ættu að brokka heim, |
|
það eru engir prinsar eftir til að brynna þeim. |
|
|
Mamma, mamma ætlar að djamma |
|
|
Mamma, mamma ætlar að djamma |
|
|
|
Mútta, mútta ætlar að tjútta |
|
|
Mútta, mútta ætlar að tjútta |
|
|
|
|
|