Að lífið sé skjálfandi lítið gras, |
|
má lesa í kvæði eftir Matthías |
|
en allir vita hver örlög fær |
|
sú urt sem hvergi í vætu nær. |
|
|
|
:,:Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman |
|
|
að vera svolítið hífaður. :,: |
|
|
Það sæmir mér ekki sem Íslending |
|
að efast um þjóðskáldsins staðhæfing. |
|
En skrælna úr þurrki ég víst ei vil |
|
og vökva því lífsblómið af og til. |
|
|
|
:,:Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman |
|
|
að vera svolítið hífaður. :,: |
|
|
Nú þekkist sú skoðun og þykir fín |
|
að þetta vort jarðlíf sé ekkert grín. |
|
Menn eiga að lifa hér ósköp trist |
|
og öðlast í himninum sæluvist. |
|
|
|
:,:Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman |
|
|
að vera svolítið hífaður. :,: |
|
|
En ég verð að telja það tryggara |
|
að taka út forskot á sæluna, |
|
því fyrir því gefst ekkert garantí |
|
að hjá Guði ég komist á fyllerí. |
|
|
|
:,:Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman |
|
|
að vera svolítið hífaður. :,: |
|