Í Betlehem er barn oss fætt. |
|
|
Því fagni gjörvöll Adamsætt. |
|
|
|
Það barn oss fæddi :.: fátæk mær :.: |
|
Hann er þó dýrðar Drottinn skær. |
|
|
|
Hann var í jötu :.: lagður lágt,:.: |
|
en ríkir þó á himnum hátt. |
|
|
|
Hann vegsömuðu :.: vitringar :.: |
|
hann tigna himins herskarar. |
|
|
|
Hann boðar frelsi' og :.: frið á jörð :.: |
|
og blessun Drottins barnahjörð |
|
|
|
Vér undir tökum :.: englasöng :.: |
|
og nú finst oss ei nóttin löng. |
|
|
|
Vér fögnum komu :.: Frelsarans :.: |
|
vér erum systkin orðin hans. |
|
|
|
Hvert fátækt hreysi :.: höll nú er :.: |
|
Því Guð er sjálfur gestur hér. |
|
|
|
Í myrkrum ljómar :.: lífsins sól :.: |
|
Þér, Guð sé lof fyrir gleðileg jól. |
|
|