Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. |
|
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. |
|
Einir fara og aðrir koma í dag, |
|
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. |
|
Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá, |
|
en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða. |
|
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á, |
|
en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða. |
|
|
En það er margt um manninn á svona stað, |
|
og meðal gestanna er sífelldur þys og læti. |
|
Allt lendir í stöðugri keppni um að koma sér að |
|
og krækja sér í nógu þægilegt sæti. |
|
En þó eru sumir, sem láta sér lynda það |
|
að lifa út í horni, óáreittir og spakir, |
|
því það er svo misjafnt, sem mennirnir leita að, |
|
og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir. |
|
|
En mörgum finnst finnst hún dýr þessi hóteldvöl, |
|
þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða. |
|
En við, sem ferðumst, eigum ei annars völ. |
|
Það er ekki um fleiri gististaði að ræða. |
|
Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn, |
|
og viðbúnaður, er gestirnir koma í bæinn, |
|
og margir í alsnægtum una þar fyrst um sinn. |
|
En áhyggjan vex, er menn nálgast burtferðardaginn. |
|
|
Þá streymir sú hugsun um oss sem Ískaldur foss, |
|
að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss, |
|
er dauðinn, sá mikli rukkari, réttir oss |
|
reikninginn yfir það sem var skrifað hjá oss. |
|
Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur gefst |
|
né færi á að ráðstafa nokkru betur. |
|
Því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst, |
|
í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur. |
|