Það gerðist hér suður með sjó |
|
|
og ekkjan hans, Þóra, var ekki að slóra |
|
til útfararveislu sig bjó. |
|
Og ekkjan hans, Þóra, var ekki að slóra |
|
til útfararveislu sig bjó. |
|
|
:,: la la la la la la la la la :,: |
|
|
Það var logndrífa' og ládauður sjór, |
|
er hinn látni í gröfina fór, |
|
og ekkjan með sjarmi brá svuntu að hvarmi. |
|
Menn sáu, að hryggðin var stór. |
|
Og ekkjan með sjarmi brá svuntu að hvarmi. |
|
Menn sáu, að hryggðin var stór. |
|
|
:,: la la la la la la la la la :,: |
|
|
Og klerkur sagði': "Holdið er hey. |
|
Vér hryggjumst og kveinum ó vei. |
|
Þann gæðamann tel ég sem guði nú fel ég |
|
við gleymum hans trúmennsku ei. |
|
Þann gæðamann tel ég sem guði nú fel ég |
|
við gleymum hans trúmennsku ei. |
|
|
:,: la la la la la la la la la :,: |
|
|
Þegar gengin frá garði var drótt |
|
kom granninn og talaði hljótt. |
|
Þótt góðan með sanni þú syrgir nú manninn |
|
má sorginni gleyma í nótt. |
|
Þótt góðan með sanni þú syrgir nú manninn |
|
má sorginni gleyma í nótt. |
|
|
:,: la la la la la la la la la :,: |
|
|
En Þóra sagði': "Því skal ei leynt |
|
að þetta er fallega meint, |
|
en sorgina' ég missti, er ég kistusmiðinn kyssti |
|
þú kemur því góði of seint. |
|
En sorgina' ég missti, er ég kistusmiðinn kyssti |
|
þú kemur því góði of seint. |
|
|
:,: la la la la la la la la la :,: |
|