Ég sá hana' á skólaballinu' í gær |
|
og allt í einu var sem minningin skær |
|
|
í gegnum fólksfjöldann ég færði mig nær. |
|
En þá allt í einu sá ég þá vá |
|
að einn af vinum mínum stóð henni hjá |
|
og er þau sáu mig þá læddust þau á braut. |
|
|
|
Ég gekk særður út í niðdimma nótt, |
|
um götur ráfaði, ó, allt var svo hljótt |
|
þar til ég sá húsið' hennar. |
|
Ég inní niðdimmt skot kom mér fljótt. |
|
Ég í heila eilífð hékk þar og beið. |
|
Hvað gerir særður maður ekki í neyð. |
|
Ég bara varð að sjá hana einu sinni enn, |
|
|
|
|
Eftir langa mæðu heyrði ég hljóð. |
|
|
Hún kom gangandi að mér snöktandi og móð |
|
|
og upp að ljósastaur sér hallaði' og um ennið hélt. |
|
|
Ég missti mig og til hennar gekk, |
|
|
um axlir hennar greip. Það á hana fékk. |
|
|
Í gegnum tárin sá ég bros og hlýju. |
|
|
Var hún orðin mín að nýju? |
|
|
Nú við vorum aftur saman á ný, |
|
tveir krakkabjálfar aftur saman á ný. |
|
Ég spurði hana ekki hvað um kvöldið hafði skeð, |
|
ég skipti mér alls ekki af því. |
|
Ég bara í hjarta mínu vissi og fann |
|
að stúlku þessari ég hugástum ann |
|
og núna var hún aftur orðin stúlkan mín. |
|
|