Lítil stelpa sagði við mig sjáðu skýin þarna |
|
sjáðu þetta þykka hvíta þar er hópur barna |
|
þegar ég verð gömul og geng boginn svona |
|
mun Guð á himnum taka mig og Guð hún er kona |
|
|
Gamall maður sagði við mig sumarið er búið |
|
Hjartað mitt er ansi þreytt orðið frekar lúið |
|
að ég deyi í svefni vinur það ég vona |
|
og vakni upp og sjái að Guð minn er kona |
|
|
|
|
Ástfangna konan sagði sjáðu hann er fagur |
|
ég sef við brjóst hans uns að nýju rís dagur |
|
og ég óska mér að dagar okkar verði alltaf svona |
|
og eitt máttu vita ég veit að Guð er kona |
|
|
Lítil stelpa sagði við mig sjáðu skýin þarna |
|
sjáðu þetta þykka hvíta þar er hópur barna |
|
þegar ég verð gömul og geng boginn svona |
|
mun Guð á himnum taka mig og Guð hún er kona |
|