Close
With pictures of chords Without chords Add this song to My favourites Printable version
View chords

Ísland er land þitt

Lyrics author: Margrét Jónsdóttir


Em7 
Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð.
Ísland er landið, sem ungan þig dreymir.
A7 D7 
Ísland í vonanna birtu þú sérð. 
A7 
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
D7 
Ísland með blikandi norðljósatraf.
Em A7 
Ísland, er feðranna afrekum hlúði.
A7 
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.
Em7 
Íslensk er þjóðin, sem arfinn þinn geymir.
Íslensk er tunga þín skír eins og gull.
Íslensk sú lind, sem um æðar þér streymir.
A7 D7 
Íslensk er vonin af bjartsýni full. 
A7 
Íslensk er vornóttin albjört sem dagur.
D7 
Íslensk er lundin með karlmennsku þor.
Em A7 
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
A7 
Íslensk er trúin á frelsisins vor.
C7 
Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma.
Bb 
Íslandi helgar þú krafta og starf.
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
C7 C7 F7 
íslenska tungu, hinn dýrastarf. 
Bb C7 
Ísland sé blessað um aldanna raðir,
F7 Bb 
íslenska moldin, er lífið þér gaf.
Gm C7 
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Bb C7 
Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf.



    Go back
icon/c10.gifkatla_cuty
6.5.2005
þetta er svo fallegt en hérna eigið þið ekki þjóðsönginn!!
You must be a registered user to be able to post a message