Á Betlehemsvöllum þar birtist um nótt, |
|
hinn blessaði engill, sem boðar oss skjótt: |
|
Nú fagnið og gleðjist því frelsarinn er |
|
oss fæddur í heiminn á völlunum hér. |
|
|
Í lágreista jötu hér lausnarinn fyrr |
|
var lagður í hálminn við fjárhússins dyr. |
|
Þar stjarnan á himninum blikaði blítt, |
|
og birtuna lagði um andlit hans frítt. |
|
|
Og dýrin á völlunum vaka þá nótt, |
|
en vindurinn sefur og allt er svo hljótt. |
|
Nú barnið í jötunni brosir þér við, |
|
og blessun því fylgir, það gefur þér frið. |
|
|
Ó ver hjá mer Jesús, ó veit mér þá bón, |
|
að vernda mig ætíð svo bíði ei tjón, |
|
og blessa þú ávallt öll börnin þín smá, |
|
sem biðja þess heitast að lifa þér hjá. |
|