Ó, Jesú barn, þú kemur nú í nótt |
|
og nálægð þína ég í hjarta finn |
|
þú kemur enn, þú kemur undra hljótt |
|
í kotin jafnt og hallir fer þú inn |
|
|
Þú kemur enn til þjáðra í heimi hér |
|
með huggun kærleiks þíns og æðsta von |
|
í gluggaleysið geisla inn þú ber |
|
því guðdómsljóminn skín um mannsins son |
|
|
Sem ljós og hlýja í hreysi dimmt og kalt |
|
þitt himneskt orð burt máir skugga og synd |
|
þín heilög návisthelgar mannlegt allt |
|
í hverju barni sé ég þína mynd. |
|