Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Jói útherji

Lyrics author: Ómar Ragnarsson


Öll þið eflaust þekkið Jóa, 
hann var innherji hjá Val, 
síðan útherji hjá KR. 
Hann var alveg „spindegal“. 
Því knattspyrna gerði hann oft svo æstan, 
að honum engin héldu bönd, 
og í einu af sínum háu spörkum 
skaut hann niður önd.
   Hann er þekktur fyrir sín þrumuskot
  og þegar hann leikur knattspyrnu,
  þá er það ekkert pot.
  Og þetta æði á huga hans allan
  og allur tíminn fer,
  í að elta bolta, horfa á leiki,
  og hrópa og sleppa sér.
Þó væri hann aðdáandi Hermanns, 
hann aldrei skoraði,  
fyrr en einn dag er hann trylltist 
og gegnum mark sitt boraði.
Í gegnum þvögu fram og aftur, 
hann einlék og svo reið af spark, 
það var óverjandi skot í stöng 
og inn í eigið mark.  
Í úrslitaleik um daginn 
í ofsabaráttu 
þá hann átti að taka vítaspyrnu á síðustu mínútu,
hann hugðist þrykkja honum beint í netið  
en í stað þá stefndi hann 
upp í stúkuna og sleikti 
menntamálaráðherrann. 
            Hann er þekktur... 
Jafnvel uppi í rúmi um nætur 
hann þolir ekki við, 
þá hann ólmast, svo að konugreyið  
hefur engann frið. 
Í nótt hann verstan grikk henni gerði 
þá gaf henni spark, BOOM! 
svo hún endasentist út á gólf, 
og hann æpti: „ÞAРVAR MARK“!!!
            Hann er þekktur... 



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message