Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Frækorn og flugur



Þetta er lítið lag um fiðrildi og flugur
og frækorn og smugur
er út um allt sjást. 
Þetta köllum við ást 
Þessi söngur er um rjóður og runna
og rósfagra munna
er kyssast og kljást.
Þetta köllum við ást
     Og þegar nóttin svarta sígur á
   sæla fullkomin er nær.
  Svífur fiðrildi með frækorn til og frá
  fagnar því hver sem fær.  
Þetta er lítið lag um gagn bæði og gaman 
er gleðjast má saman 
þrauka og þjást 
þetta köllum við ást 



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message