Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Komu engin skip í dag

Song composer: Magnús Eiríksson
Lyrics author: Magnús Eiríksson


Um sólsetur í fjörunni
á steini við röst er hún
og bláum augum beinir
út að hafsins ystu brún.
Og fyrir munni sér hún tautar
alltaf sama brag:
Guð minn góður, komu engin skip í dag.
Hún átti mann, sem sigldi sjó
og færði fiskinn heim.
Þeir fórust víst í óveðri
við gleymdum ekki þeim.
En síðan er hún undarleg
og syngur þennan brag.
Guð minn góður, komu engin skip í dag.
Hún hefur árum saman syrgt
sinn horfna eiginmann,
og sjáist sigla eitthvert skip
hún heldur að það sé hann.
Og allir hérnaí þorpinu
nú þekkja þennan brag.
Því lét guð minn ekki skipið koma í dag?



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message