Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Kettlingarnir



(Lag: Siggi er svo sætur)
Sjáið þið hvar þau sitja
systkinin litlu ein.
Þau voru áðan að ólmast
og elta Gunnu og Svein.
En kæmi nú fljúgandi fluga
og flygi á nefið á þeim,
þá færi nú róin að raskast
hjá rólegu köttunum tveim.
Og þá myndu lappir á lofti
með liðleika flugunni ná
því hún þykir ágætis æti
ungu köttunum hjá.
Hún mamma er á músaveiðum
og meðan ég heima dvel,
svo fæ ég víst mús í matinn
ef mömmu gengur vel.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message