Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Kannksi er ástin

Song composer: John Denver
Lyrics author: Páll Bergþórsson


(Lag: Perhaps Love)
Kannski er ástin sumum sæluhús
í svörtum norðanbyl.
Og hún vekur von um unað
og hún veitir hjartans yl.
Ef erfiðleikar ógna
og einsemd sækir heim
mun ástarminnig ein úthýsa þeim.
Kannski er ástin eins og gluggi
og opnar stofudyr
og hún býður þér í bæinn
og betra líf en fyrr.
Og þótt þig beri langt af leið
um leyndan villustíg
mun ástin vísa veg og vernda þig.
Og mjúk er ástin eins og ský
en einnig hörð sem stál
og einum er hún vani
en öðrum hjatans mál.
Og stundum endist ástn vel
þótt ýmsum hverful sé
og hún er mörgum eitt og allt
en öðrum vavafé.
Kannski er ástin eins og sjórinn
full af öfgum, köld og hlý
líkust eldi þegar úti er kalt
og næstum þrumugný.
Ef allt að óskum gengur 
og eilífð bíður mín
mun endast alla tíð mín ást til þín.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message