Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Kvöldvísur



Kvölda tekur sest er sól, 
sígur þoka´ á dalinn.
Komið er heim á kvíaból
kýrnar féð og smalinn.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurtindum,
lítur á þennan dýrðardag;
drottinn stýri vindum.
Senn er komið sólarlag,
Sést á norðurheiðum,
líður á þennan dýrðardag;
drottinn stýri leiðum.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurhnjúkum,
líður á þennan dýrðardag;
drottinn hjálpi sjúkum.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurfjöllum,
líður á þennan dýrðardag;
drottinn hjálpi oss öllum.
Senn er komið sólarlag,
sendi oss drottinn friðinn,
og svo gefi annan dag
eftir þennan liðinn.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message