Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Áfram, Kristsmenn, krossmenn



Áfram, Kristsmenn, krossmenn,
kóngsmenn erum vér.
Fram í stríðið stefnið,
sterki æskuher.
Kristur er hinn krýndi
kóngur vor á leið.
Sjáið fagra fánann
frelsis blakta’ á meið.
Kór: Áfram, Kristsmenn, krossmenn,
kóngsmenn erum vér.
Fram í stríðið stefnið,
sterki æskuher.
Gjörvöll Kristí kirkja
kveður oss með sér,
fjendur ótal eru,
ei þó hræðast ber.
Konungsstólar steypast,
stendur kirkjan föst,
bifast ei á bjargi
byggð, þótt dynji röst.
Komið, allar álfur,
allra þjóða menn.
Veitið oss að vígi,
vinna munum senn.
Allar englatungur
undir taki’ í söng:
Dýrð og lof sé Drottni,
dýrð í sæld og þröng.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message