Hefjum nú, bræður, vorn hátíðarsöng; |
|
hátt er til veggja í salnum |
|
ungir og gamlir í iðandi þröng |
|
allir sér skemmta í dalnum. |
|
|
Allir inn í dal þér ungra sveina val, |
|
og ekki meiga stúlkurnar sér gleyma. |
|
og ekkert getur hugann betur hresst. |
|
|
Kyrjum gleðilag á Köldubraut í dag, |
|
-þótt kuldalegt sé nafnið, það ei sakar. |
|
Brosir hæð og laut nú burt með hverja þraut |
|
og bregðum oss með söng á ástarbraut. |
|
|
Þá minnkar ekki fjörið, þegar dagsins birta dvín |
|
og dalinn sveipar kvöldið húmsins klæði. |
|
Og fagurt er um lágnættið, er bálið bjartast skín |
|
í brekkunum þó minnki heldur næði. |
|
|
Allir inn í dal, þér ungra sveina val, |
|
og ekki meiga stúlkurnar sér gleyma. |
|
Fagra tjaldaþröng með fána á hverri stöng |
|
nú fyllum vér með þjóðhátíðarsöng. |
|