Einu sinni var hestur og kýr, |
|
|
Það voru mestu myndardýr, |
|
|
|
Hann hét Smári og hún hét Rós, |
|
|
Hann átti hesthús, hún átti fjós, |
|
|
|
Þau hittust eitt sinn uppi í dal, |
|
|
og óðara með sér tóku tal, |
|
|
|
Þau töluðu um veðrið hægt og hlýtt, |
|
|
og blessað grasið, svo grænt og nýtt, |
|
|
|
Og kusa varð skotin í klárinum strax, |
|
|
„En hvað þú ert með fallegt fax, |
|
|
|
En klárinn ansaði ófeiminn, |
|
|
„Hálfu fegurri er hali þinn, |
|
|
|
Og kýrin hélt áfram ört með geð, |
|
|
„Þvílíka hófa ég hef ei séð, |
|
|
|
En klárinn hrærður á kúna leit, |
|
|
„Aðrar eins klaufir ég engar veit, |
|
|
|
Og þarna gláptu þau góða stund, |
|
|
og hældu hvort öðru á alla lund, |
|
|
|
Og hétu hvort öðru himinsól, |
|
|
að hittast í næði um næstu jól, |
|
|
|
Þá skyldu þau gleðjast á góðum stað, |
|
|
Svo kysstust þau ánægð upp á það, |
|
|
|
Í hesthúsi og fjósi var hlakkað til, |
|
|
Og loks komu jólin með ljós og yl, |
|
|
|
Þá fengu öll dýrin mikinn mat, |
|
|
Nú borðaði hver sem betur gat, |
|
|
|
Og hesturinn Smári hafra sauð, |
|
|
og vinum sínum til veislu bauð, |
|
|
|
Það var sem allt yrði eintómt ljós, |
|
|
er kom í hesthúsið kýrin Rós, |
|
|
|
Þau heilsuðust eins og fínna fólk, |
|
|
Hún gaf honum fulla fötu af mjólk, |
|
|
|
En fleira gekk þangað gesta inn, |
|
|
|
|
|
Komu þar líka kisa og ær, |
|
|
brosandi og fínar báðar tvær, |
|
|
|
Og óboðin komu í það hús, |
|
|
snjótittlingur og mórauð mús, |
|
|
|
Þau fengu að hýrast í horni þar, |
|
|
og létu sér nægja leifarnar, |
|
|
|
Nú hófu átið hin heldri dýr, |
|
|
og ærin sagði þeim æfintýr, |
|
|
|
Loks stóð upp klárinn og kusa hans, |
|
|
og stungu upp á því að stíga dans, |
|
|
|
En þá vantaði eitthvert undirspil, |
|
|
svo haninn var sóttur að hjálpa til, |
|
|
|
Og haninn stóð sperrtur og hóf sitt gal, |
|
|
og nú var hoppað í hesthússal, |
|
|
|
Klárinn dansaði kúna við, |
|
|
aftur á bak og út á hlið, |
|
|
|
Og hafurinn ánni upp þá bauð, |
|
|
Í hálsi þeirra hláturinn sauð, |
|
|
|
Og seppi á kisu kunni tök, |
|
|
Þar hringsnerust þau með bogin bök, |
|
|
|
Og snjótittlingurinn, snar og fús, |
|
|
í horninu sveiflaði sinni mús, |
|
|
|
Og nú hömuðust dýrin, sæl og sveitt, |
|
|
þangað til öll voru orðin þreytt, |
|
|
|
Þá músin hljóð inn í holu smaug, |
|
|
Og út um rúðuna fuglinn flaug, |
|
|
|
Og hafurinn leiddi ána út, |
|
|
Hún nartaði í skegg hans niðurlút, |
|
|
|
Og kisa tölti með héppa heim, |
|
|
Svoleiðis endar sagan af þeim, |
|
|
|
En í húsinu sofnuðu hestur og kýr, |
|
|
Þau voru hyggin og hófsöm dýr, |
|
|
|
Því hvernig sem veslings haninn gól, |
|
|
þau vildu ekki lengur vaka um jól, |
|
|
|
Svo haninn vakti upp hænurnar, |
|
|
og nú voru sungnir sálmar þar, |
|
|
|
Hvort heimurinn batnaði við það væl, |
|
|
það veit ég ekki. Og verið þið sæl. |
|
|
|