Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Bara að hann hangi þurr

Lyrics author: Ómar Ragnarsson


Aha, ó nei. Bara að hann hangi þurr!
Aha, ó nei. Bara að hann hangi þurr!
Því flekkurinn minn er alveg marflatur
og ég er mjög illa staddur, nema hann hangi þurr.
Í obboðlitlum hvammi er obboðlítill bær,
þar obboðlítill bóndi býr með obboðlitlar ær,
með obboðlitla hrífu, í obboðlítinn flekk,
í ofboði hann flýtti sér, því rigning yfir hékk.
Aha, ó nei. Bara að hann hangi þurr!
Aha, ó nei. Bara að hann hangi þurr!
Því flekkurinn minn er alveg marflatur
og ég er mjög illa staddur, nema hann hangi þurr.
Í obboðlitlu þorpi fer hinn obboðlitli kall
úr obboðlitlu aukastarfi á obboðlítið svall,
en obboðlitla konan hans er obboðlítið flott,
í ofboði hún hengir upp sinn obboðlitla þvott.
Aha, ó nei. Bara að hann hangi þurr!
Aha, ó nei. Bara að hann hangi þurr!
Því þvotturinn minn er alveg marflatur
og ég er mjög illa stödd, nema hann hangi þurr.
En obboðlitla konan veit að obboðlítið kaup
er obboðlítils virði erftir obboðlítið staup
og obboðlítið breyskur er obboðlitli Jón,
í ofboði hún býður þessa obboðlitlu bón:
Aha, ó nei. Bara að hann hangi þurr!
Aha, ó nei. Bara að hann hangi þurr!
Í kollinum er hann svoldið klikkaður
og hann mun kaupinu týna, nema hann hangi þurr.
Hann mun kaupinu týna,
hann mun vitinu týna,
hann mun ærunni týna,
hann mun konunni týna,
nema hann hangi þurr.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message