Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Með vottorð í leikfimi

Song composer: Bjartmar Guðlaugsson
Lyrics author: Bjartmar GUðlaugsson


Vorið kom með væntingar
en sumarið með svör.
Um haustið sáust kettlingar
með Lóuglott á vör.
Ég var þarna staddur
og stóð mig ekki í náminu.
Bærinn minn var blankur
og blíðan stundum köld.
Flestir voru fátækir
en sumir höfðu völd.
Eyjólfur rak mig
bara út af búsinu og kláminu. 
        Með vottorð í leikfimi
        skoða ég bæinn minn.
Yngsti sonur bæjarkóngsins
vildi verða lögga er yrði hann stór.
Hann gerðist síðan kynhverfur
og eitthvað út í eyðnilöndin fór.
Drottningin hefur djúsað upp frá því
Valíum bryður og Æris þambar endalaust.
        Með vottorð í leikfimi
        skoða ég bæinn minn.
Eitthvað var ég utanveltu
allt það ljúfa ár.
Sumar kenndir skapa okkur 
skilningsvana tár.
Í slorinu stend ég
sloppinn úr grautfúlu náminu.
Þú varst þarna líka
þrjóskufull en blíð.
Enda varð ég ástfanginn
og finn í seinni tíð,
að lífsspekin liggur
í saltinu, rokinu og kláminu.
Ég er með unglingabólu á nefinu 
og ég næ henni ekki af.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message