Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Síldarvísa

Song composer: Oddgeir Kristjánsson
Lyrics author: Ási í Bæ


Þær heilsuðu okkur með svellandi söng 
síldarstúlkurnar 
og þá voru kvöldin svo ljós og löng, 
en ljúfastar næturnar. 
Því við vorum ung og ástin hrein 
og ólgandi hjartans blóð. 
Og sumarið leið og sólin skein 
og síldin á miðunum óð ........ 
Ennþá er mér í minni 
meyjarbros og tár, 
skellóttur skúluklútur 
og skollitað undir hár, 
glettni í gráum augum 
gamanyrði á vör, 
dansinn á bátabryggju 
blossandi æskufjör. 
Spriklandi silfur í sólareldi 
sökkhlaðinn bátur í áfangastað, 
landað í skyndi og kysst að kveldi, 
kannastu bróðir við lífið það? 
Köld eru kynni haustsins, 
kveðjustundin sár _ 
­ ennþá er mér í minni 
meyjarbros og tár.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message