Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Svo björt og skær

Song composer: Oddgeir Kristjánsson
Lyrics author: Loftur Guðmundsson


Svo björt og skær sem bjöllu gnýr 
við bakka lindin strengi knýr. 
Úr bláfirrð nætur blærinn vær 
að beði daggar snýr. 
Er draumljós nóttin sveipar sund, 
og sofnar fugl í mó, 
fer minning dags um dal og grund 
í duldarhljóðri ró. 
Sá dagur sem að djúpum leið 
sú dögg er perlum stráir meið, 
er draumum vígð,en von og ást 
ei verður markað skeið. 
Þeir hugir tveir,sem hljóðir þrá, 
við heiði nætur vængi fá, 
en þeyrinn vaggar þreyttri önd 
og þerrar grátna brá. 
Við húmsins töfra hulin þrá 
um huga vakin fer. 
Við daggar glit má draummynd sjá, 
er degi vörnuð er. 
Svo björt og skær sem bjöllu gnýr 
við bakka lindin strengi knýr. 
Er daggir glitra,vornótt vær 
til vöku draumum snýr.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message