Er sumarið mig vængjum sínum vefur |
|
vaknar gömul þrá í brjósti mér. |
|
Eyjan mín sem allt mér gefið hefur |
|
óðara þá til þín strax ég fer. |
|
|
Ævintýrin engan taka enda |
|
alltaf þegar hittumst við á ný |
|
hér ævintýrum ljúft er í að lenda |
|
og liggja þínum mjúka faðmi í. |
|
|
|
Þegar logarni dansandi lýsa upp tjöld |
|
|
hljóma lögin sem kunnum við flest. |
|
|
Þá í hjartanu veit ég að öld eftir öld |
|
|
verður alltaf á Heimaey best. |
|
|
Í dalnum sem var eitt sinn ofurseldur |
|
ösku,fyrir áratugum tveim |
|
logar bál og heitur ástar eldur |
|
allra sem hér komnir eru heim. |
|
|
Njótum þess að sitja aftur saman |
|
sameinuð í okkar fagra dal. |
|
Nú skal verða glatt á hjalla og gaman |
|
því gleðin hér í dalnum ríkja skal |
|