Close
Without images of chords Without chords Add this song to My favourites Printable version
C
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
Dm
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
G
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
View chords

Dag í senn

Song composer: Oskar Ahnfelt
Lyrics author: Sigurbjörn Einarsson


Dm 
Dag í senn, eitt andartak í  einu,
eilíf  náð þín, faðir gefur  mér.
Dm 
Mun ég þurfa þá að kvíða  neinu,
þegar  Guð minn fyrir öllu  sér?
Dm 
Hann sem miðlar mér af gæsku  sinni
minna  daga skammt af sæld og  þraut,
Dm 
sér til þess, að færa leið ég  finni
fyrir  skrefið hvert á lífs míns  braut.
Dm 
Hann, sem er mér allar stundir  nærri,
á við  hverjum vanda svar og  ráð,
Dm 
máttur hans er allri hugsun  hærri,
heilög  elska, viska, föðurnáð.
Dm 
Morgundagsins þörf ég þekki  eigi,
það er  nóg, að Drottinn segir  mér:
Dm 
Náðin mín skal nægja hverjum  degi,
nú í  dag ég styð og hjálpa  þér.
Dm 
Guð, ég fæ af fyrirheitum  þínum
frið og  styrk, sem ekkert buga  má.
Dm 
Auk mér trú og haltu huga  mínum
helgum  lífsins vegi þínum  á,
Dm 
svo að ég af hjartaþeli  hreinu,-
hvað sem  mætir geti átt með  þér
Dm 
daginn hvern, eitt andartak í  einu,
Uns til  þín í ljóssins heim ég  fer.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message