Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Uppi í sveit



Í suðurmúlasýslu sælu á ég reit, 
uppi í sveit
Fjallasalinn hvergi fegurri ég leit, 
uppi í sveit
Níu á ég krakka og konu sem er feit, 
uppi í sveit
Kynstrin öll af kindum og kúahjörð á beit, 
uppi í sveit
Og ég fæ styrk frá landbúnaðarráðuneyti.
Jahá! Og aukagreiðslur frá framleiðnisjóði.
Og enginn annar kemst á markaðinn
Því mjólkurkvótinn er minn.
Veslingurinn pabbi á vinnu út sér sleit 
uppi í sveit
En ég ætla ekki að enda eins og sjálfdauð geit 
uppi í sveit
Að liggja uppi í sófa er það besta sem ég veit
Uppi í sveit
Því ég nenni ekki að vinna í níu tíma streit, 
uppi í sveit.
Og ég fæ styrk frá landbúnaðarráðuneyti.
Jahá! Og aukagreiðslur frá framleiðnisjóði.
Og enginn annar kemst á markaðinn
Því mjólkurkvótinn er minn.
Í suðurmúlasýslu sælu á ég reit
uppi í sveit
Því framsóknarmaddaman er fönguleg og feit 
uppi í sveit



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message