|
Ég vakna oftast þreyttur, varla með sjálfum mér, |
|
|
en ég veit það er til annað líf en það sem ég lifi hér. |
|
|
Og þrá mín hún vakir, meðan þokan byrgir mér sýn. |
|
|
Mig þyrstir í eitthvað annað en gúanó, tékka og vín. |
|
|
|
|
Á fiskinum lifir þorpið, þroskurinn er fólkinu allt. |
|
|
Það þrælar alla vikuna, vaðandi slor og salt. |
|
|
Við færibandið standa menn en þeir finna þar enga ró. |
|
|
flestir þeir ungu komnir suður þar sem að draumunum er nóg. |
|
|
|
|
Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegnum allt. |
|
|
Kannski var öllum öðrum hlítt en mér var allavegana kalt. |
|
|
Það bíða allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng. |
|
|
Bátarnir lágu tómir við kajan í kinnungunum söng. |
|
|
|
|
|
Faðir minn átti drauma sem dóu fyrir lítið fé. |
|
|
Mig dreymdi um að verða að manni en ég náði honum aðeins |
|
|
|
|
Ég gleymi seint þeim augum, gínandi botnlaust tóm. |
|
|
Gamall maður fyrir aldur fram með brostinn hrjúfan róm. |
|
|
|
|
Þegar ég var rétt orðinn sautján, um sumarið barst mér frétt, |
|
|
að sæta dúkkan hans Bensa í Gröf væri orðinn kasólétt. |
|
|
Næturnar urðu langar, nagandi óttinn með. |
|
|
Nelgdur ég gat ekki tekið til baka það sem hafði skeð. |
|
|
|
|
Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegnum allt. |
|
|
Kannski var öllum öðrum hlítt en mér var allavegana kalt. |
|
|
Það bíða allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng. |
|
|
Bátarnir lágu tómir við kajan í kinnungunum söng. |
|
|
|
|
|
Aldrei fór ég suður, alltaf skorti mig þor. |
|
|
Hvert einasta sumar var því frestað svo kom haust og svo |
|
|
|
|
Nú er ég kominn á planið og ég pæli ekki neitt. |
|
|
Ég pækla mínar tunnur fyrir það ég fæ víst greitt. |
|
|
|
|
Ég hugsa oft um börnin mín bráðum kemur að því |
|
|
að þau bíða ekki lengur þau fara, hér er ekkert sem heldur í. |
|
|
Enn koma tómir bátarnir og bræðslan stendur auð. |
|
|
Baráttan er vonlaus þegar miðin eru dauð. |