| C | F | | Ég vakna eftir furðulegt fyller | í. |
|
| G | C | Ég | fatta um leið að ég hef látið | gabbast enn á ný. |
|
| F | G | Am | | Rauðþrútinn af | saltáti og | sykurinntöku, |
|
| Dm | G | | síðast vissi ég af mér í | einrúmi með smáköku. |
|
| C | Am | | Ég segi bara eins og er – | endum þessa dellu hér. |
|
| Dm | G | C | Nú mega | jólin, nú mega | jólin fara fyrir | mér. |
|
|
|
| C | F | | Uppþembdur af uppseldum jóla | bjór. |
|
| G | C | Með | allra þjóða kjötvörum ég | drýgt hef stöðugt hór. |
|
| F | G | Am | | Gleyptur er hinn | marglitaði | Makkintosssjóður, |
|
| Dm | G | | meira að segja gaurinn sem | mér finnst alger viðbjóður. |
|
| C | Am | | Ólgar nú í æðum mér nær | einvörðungu bráðið smér. |
|
| Dm | G | C | Nú mega | jólin, nú mega | jólin fara fyrir | mér. |
|
|
|
Enn eitt jólaballaboðið sit. |
|
Ég brosi gegnum kjötsvimann og reyni að sýna lit |
|
en við mæjónessustækjuna er minningin svo hrein |
|
af mömmu taka æðiskast og reyna að kyrkja jólasvein. |
|
Kaldrifjuð hún kjötið sker, kaldur sviti um mig fer. |
|
Þá mega jólin, þá mega jólin fara fyrir mér. |
|
|
Hér heima ríkir andleg hungursneyð |
|
því ég horfði gegnum plottið hjá Arnaldi um leið. |
|
Jólatréð í stofu húkir, herfilega trist. |
|
Það hefur barr og lífsþorsta og mest allt silfurhárið misst. |
|
Og áhangandi englaher hefur fyrirfarið sér. |
|
Nú mega jólin, nú mega jólin fara fyrir mér. |
|
|
Ef þið sendið fleiri krúttleg kort, |
|
með krökkum — misvelheppnuðum — sem mættu líða skort, |
|
gríp ég þetta bréfafargan beint úr lúgunni, |
|
brenni svo allt heila klabbið, ásamt pakkahrúgunni. |
|
Svo logar þetta gjafager, eins og Gene að skjóta sig í Cher. |
|
Þá mega jólin, þá mega jólin fuðra upp fyrir mér. |
|
|
Þegar þetta frenzý fjarar út, |
|
ég finn það losnar ögn um þennan kvíðarembihnút. |
|
Tíni saman skrautið og pínu væminn verð |
|
og vildi ég yrði aftur lítið jólabarn í sleðaferð. |
|
Unz raunveruleikinn réttir mér reikning fyrir desember. |
|
Þá mega jólin, þá mega jólin bara fokka sér. |
|
|