Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Rökkurró

Song composer: Platters, Flamingos


(Lag: Twilight Time)
Vornætur friður fyllir bæinn 
í rökkurró.
Sólin í vestri sest í æginn 
í rökkurró.
Og meðan rauðagulli reifast næturtjöld.
Þú kemur til mín í rökkurró.
Manstu ekki vina fyrsta fundinn 
við Arnarhól.
Mörg var þar okkar unaðsstundin 
þá sezt var sól.
Við heyrðum svani kveða söng um ást og vor.
Og sátum þar ein í rökkurró.
            Langt er nú liðið síðan þá
            því leiðir skildu og þú hvarfst mér frá.
            Veistu? Ég vakti marga nótt.
            Og vonaði og bað af heitri þrá.
Ohó - vina í kvöld ég veit þú bíður 
við Arnarhól.
Tak mig í faðm því tíminn líður 
og sezt er sól.
Því enn á vorið nógar vonir fyrir þau.
Sem sitja hér ein í rökkurró.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message