Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Af litlum neista

Song composer: Guðmundur Ingólfsson
Lyrics author: Guðmundur Ingólfsson


Oft má finna atvik smátt sem orsök nýrra kynna 
Það markar oft þá meginátt 
sem mannsins örlög þráðinn spinna 
Sígarettu hafði hann í hendi milli fingra sinna 
en eldspýturnar eigi fann, 
þær einhversstaðar varð að finna 
Ástin er eins og sinueldur. 
Ástin er segulstál. 
Af litlum neista verður oft mikið bál. 
Ástin er eins og hvítigaldur, 
gagntekur líkama’ og sál. 
Af litlum neista verður oft mikið bál. 
Brátt hann leit á bjarta mey við borð í salnum aðeins innar. 
Hann óðamála sagði ókey! 
Hún er yndisfögur með rjóðar kinnar. 
Hann slátt í brjósti sínu kenndi er sá hann þessa fögru snót 
Og beina leið á borðið renndi 
með bros á vör og hljóp við fót 
Ástin er eins og sinueldur... 
En ekki bara eld á spýtu einan fékk hjá snótinni. 
Því sjá þar mátti svart á hvítu 
hvað skein frá hjartarótinni. 
Nú boga amors englar spenntu, örvahríðin óx nú fljótt. 
Í hvolf og gátt þær hiklaust lentu, 
já, himnahersveit brást við skjótt. 
Ástin er eins og sinueldur...



    Go back
icon/po0003.gifnonnisig
10.12.2006
E-F#m-A-B-E-A-B viðl.A-B-A-E-A-B-E
You must be a registered user to be able to post a message