| Am | C | | Kátt er á jólunum, | koma þau senn, |
|
| Am | Dm | C | - þá munu upp | líta | Gilsbakka | menn, |
|
| Am | Dm | C | upp munu þeir | líta og | undra það | mest, |
|
úti sjái þeir stúlku og blesóttan hest, |
|
úti sjái þeir stúlku, sem um talað varð: |
|
„Það sé ég hér ríður hún Guðrún mín um garð, |
|
það sé ég hér ríður hún Guðrún mín heim.“ |
|
|
Út kemur hann góði Þórður einn með þeim, |
|
út kemur hann góði Þórður allra fyrst, |
|
hann hefur fyrri Guðrúnu kysst |
|
hann hefur fyrri gefið henni brauð |
|
- tekur hana af baki, svo tapar hún nauð, |
|
tekur hana af baki og ber hana inn í bæ. |
|
„Kom þú sæl og blessuð“ segir hann æ. |
|
|
„Kom þú sæl og blessuð, keifaðu inn, |
|
kannski þú sjáir hann afa þinn, |
|
kannski þú sjáir hann afa og ömmu þína hjá, |
|
þínar fjórar systur og bræðurna þrjá, |
|
þínar fjórar systur fagna þér best; |
|
af skal ég spretta og fóðra þinn hest, |
|
af skal ég spretta reiðtygjum þín; |
|
leiðið þér inn stúlkuna, Sigríður mín, |
|
leiðið þér inn stúlkuna og setjið hana í sess“ |
|
|
„Já“ segir Sigríður, „fús er ég til þess;“ |
|
„Já“ segir Sigríður - kyssir hún fljóð - |
|
„rektu þig ekki í veggina, systir mín góð, |
|
rektu þig ekki í veggina, gakktu með mér.“ |
|
Koma þær inn að húsdyrum og sæmilega fer; |
|
koma þær inn að húsdyrum og tala ekki orð. |
|
- þar situr fólkið við tedrykkjuborð, |
|
þar situr fólkið og drekkur svo glatt, |
|
fremst situr hann afi með parrukk og hatt, |
|
fremst situr hann afi og ansar um sinn: |
|
|
„Kom þú sæl, dóttir mín, velkomin inn, |
|
kom þú sæl, dóttir mín, sittu hjá mér, |
|
- nú er uppi teið og bagalega fer, |
|
nú er uppi teið, en ráð er við því, |
|
ég skal láta hita það aftur á ný, |
|
ég skal láta helst vegna þín, |
|
- heilsaðu öllu fólkinu, kindin mín. |
|
heilsaðu öllu fólkinu og gerðu það rétt.“ |
|
|
Kyssir hún á hönd sína og þá er hún nett, |
|
kyssir hún á hönd sína og heilsar án móðs; |
|
allir í húsinu óska henni góðs, |
|
allir í húsinu þegar í stað |
|
taka til að gleðja hana, satt er það, |
|
taka til að gleðja hana, ganga svo inn. |
|
Guðný og Rósa með teketilinn, |
|
Guðný og Rósa með glóðarker. |
|
|
Ansar hann afi: „Nú líkar mé;“ |
|
ansar hann afi við yngri Jón þá: |
|
„Taktu ofan bollana og skenktu þar á, |
|
taktu ofan bollana og gáðu að því, |
|
sparaðu ekki sykrið að hneppa þar í, |
|
sparaðu ekki sykrið því það hef ég til, |
|
allt vil ég gera Guðrúnu í vil, |
|
allt vil ég gera fyrir það fljóð; |
|
langar þig í sýrópið, dóttir mín góð? |
|
langar þig í sýrópið?“ afi kvað. |
|
„Æi ja ja, dáindi þykir mér það. |
|
Æi ja ja, daindi þykir mér te“ |
|
„Má bjóða þér mjólkina?“ - „Meir en svo sé“ |
|
„Má bjóða þér mjólkina? Bíð þú þá við. |
|
Sæktu fram rjóma í trogshornið, |
|
sæktu fram rjóma, Vilborg, fyrst, |
|
- vertu ekki lengi, því stúlkan er þyrst, |
|
vertu ekki lengi, því nú liggur á.“ |
|
|
Jón fer að skenkja á bollana þá, |
|
Jón fer að skenkja, ekki er það spé, |
|
sírópið, mjólkina, sykur og te, |
|
sírópið, mjólkina, sýpur hún á; |
|
sætt mun það vera. „Smakkið þið á.“ |
|
Sætt mun það vera, sýpur hún af lyst, |
|
þangað til ketillinn allt hefur misst, |
|
þangað til ketillinn þurr er í grunn, |
|
þakkar hún fyrir með hendi og munn, |
|
þakkar hún fyrir og þykist nú hress. |
|
|
„Sittu nokkuð lengur til samlætis. |
|
sittu nokkuð lengur, sú er mín bón“ |
|
Kallar hann afi á eldra Jón, |
|
kallar hann afi: „Kom þú til mín, |
|
- sæktu ofan í kjallara messuvín, |
|
sæktu ofan í kjallara messuvín og mjöð, |
|
ég ætla að veita henni, svo hún verði glöð, |
|
ég ætla að veita henni vel um stund.“ |
|
|
Brátt kemur Jón á föður síns fund, |
|
brátt kemur Jón með brennivínsglas, |
|
þrífur hann staupið, þó það sé mas, |
|
þrífur hann staupið og steypir þar á; |
|
til er henni drukkið og teygar hún þá, |
|
til er henni drukkið ýmislegt öl, |
|
glösin og skálarnar skerða hennar böl, |
|
glösin og skálarnar ganga um kring, |
|
gaman er að koma á svoddan þing, |
|
- gaman er að koma þar Guðný ber |
|
ljósið í húsið, þá húmið að fer. |
|
|
Ljósið í húsið logar svo glatt, |
|
amma gefur brauðið, og er það satt, |
|
amma gefur brauðið og ostinn við; |
|
Margrét er að skemmta að söngvara sið, |
|
Margrét er að skemmta, það er henni sýnt, |
|
- þá kemur Markús og dansar svo fínt, |
|
þá kemur Markús í máldrykkjulok, |
|
leikur hann fyrir með latínusprok, |
|
leikur hann fyrir með lystugt þel |
|
- Ljóðin eru þrotin og lifið þið vel. |
|
|
|