Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Sprettur

Lyrics author: Hannes Hafstein


Ég berst á fáki fráum
fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum
hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og á harða, harða spretti
:.: hendist áfram klárinn minn. :.: 
Það er sem fjöllin fljúgi
móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer,
og lund mín er svo létt,
eins og gæti ég gjörvallt lífið
:.: geisað fram í einum sprett.:.: 
Hve fjör í æðar færist
fáknum með.
Hve hjartað léttar hrærist.
Hlær við geð
að finna fjörtök stinn.
Þú ert mesti gæðagammur,
:.: góði Léttir, klárinn minn. :.:



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message