Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Stína og brúðan

Song composer: Guðjón Bjarnason


Á kaupmanninn rétt við búðarborðið
svo brosfögur horfði Stína:
„Ég ætlaði bara að kaupa klæði
í kjól á brúðuna mína.“
„Og hvaða lit viltu, ljúfan,“ sagði´ann
„í kjól á brúðuna þína?“
„Hvað, auðvitað rauðan, já ósköp rauðan“
með ákafa svaraði Stína.
Hann brosandi fór og klippti klæðið.
„Hvað kostar það?“ spurði Stína.
„Einn koss“ hann svaraði, „kostar klæðið
í kjól á brúðuna þína.“
Í búðinni glumdi við gleðihlátur,
er glaðlega svaraði Stína:
„Hún mamma kemur í bæinn bráðum
og borgar skuldina mína.“



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message