Ef að nú hjá pabba einn fimmeyring ég fengi, |
|
fjarskalega hrifin og glöð ég yrði þá. |
|
Ég klappa skyldi pabba og kyssa vel og lengi |
|
og kaupa síðan allt sem mig langar til að fá. |
|
|
Fyrst kaupi ég mér brúðu sem leggur aftur augun |
|
og armbandsúrið fína af fallegustu gerð. |
|
Og af því hvað hún mamma er orðin þreytt á taugum |
|
þá ætla ég að kaupa bíl í hverja sendiferð. |
|
|
Hjólhest og járnbraut ég ætla að gefa Geira, |
|
gríðarstóra flugvél ég kaupi fyrir Finn. |
|
Svo kaupi ég mér döðlur og súkkulaði’ og fleira |
|
og síðan skal ég gefa pabba allan afganginn. |
|