| | Em | G | D | | Hæ, | hoppsa-sí hæ | hoppsa- | sa! |
|
| | Em | B7 | | Svona, | elsku vinur, | upp með húmorinn! |
|
| | Em | G | D | | Hæ, | hoppsa-sí hæ | hoppsa- | sa! |
|
| | Em | B7 | Em | | Vertu | kátur núna, | nafni | minn! |
|
|
| Em | G | Við | silglum beint í | austurátt |
|
| D | Em | B7 | | yfir | Atlanshafið | fagurbátt, |
|
| Em | G | D | og | sólin skín á | himni | hátt. |
|
| Em | B7 | Em | Vertu | kátur núna, | nafni | minn. |
|
|
Og seglum skartar gnoðin glatt |
|
eins og glysgjörn snót með nýjan hatt, |
|
og ögn hún hallar undir flatt. |
|
Vertu kátur núna, nafni minn. |
|
|
Og stinnur byr í stögum hvín |
|
eins og strokin séu fíólín |
|
og aldan freyðir eins og vín. |
|
Vertu kátur núna, nafni minn. |
|
|
Og óðum styttist áfanginn, |
|
og að okkur flykkist máfurinn |
|
með gamalkunna sönginn sinn. |
|
Vertu kátur núna, nafni minn. |
|
|
Við komnir erum loks til lands, |
|
þar sem lokkandi bíður meyjafans |
|
með gleði, söng og dunandi dans. |
|
Vertu kátur núna, nafni minn. |
|
|
Í meyjanna fansi ein þó er |
|
sem að öllum léttar fótinn ber |
|
og gaum í laumi hún gefur þér. |
|
Vertu kátur núna, nafni minn. |
|
|
Og þegar sól í felur fer, |
|
þá mun fljóðið unga bjóða þér |
|
í lyngivaxna laut með sér. |
|
Vertu kátur núna,nafni minn. |
|
|
Svo vefjar um þig armar tveir, |
|
meðan angar í vitum þér lyng og reyr. |
|
En um það tölum við ekki meir! |
|
Vertu kátur núna, nafni minn. |
|
|