Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Um bjarta nóttu

Lyrics author: Bjarni Eyjólfsson


Um bjarta nóttu barst um heim
fyrst blessað jólaljóð
er hersveit engla í heiminn kom
með helgan gleðióð.
"Nú sátt og friður sé á jörð
og sigruð neyð og þröng."
Í helgum kyrrþey heimur beið
og hlýddi' á englasöng.
Nú enn vér sjáum sömu dýrð
og sömu englahjörð,
og enn vér heyrum helgan söng
sem hljómar dimmri jörð,
því hærra gæfu, harmi, neyð
og hversdags ys og þröng
og hærra öllum heimsins gný
vér heyrum englasöng. 
Ó, þér, sem byrði beygir þung
og brennheit fellið tár,
sem gangið áfram grýtta leið
svo gróa engin sár,
ó, sjá, nú ljómar ljósið bjart
og líður englahjörð
á hvítum vængjum himni frá
með helgan frið á jörð.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message