Close
Add this song to My favourites Printable version
View chords

Mjöll á furugrein

Lyrics author: Jónas Árnason


Þar sem áður við sátum saman,
í sólar mildum yl,
föl af trjánum nú falla blöðin 
í fljótsins kalda hyl.
Nöktum fótum til fundar við þig
ég fór um grænan svörð,
þar sem grúfir nú grámi haustsins
og gnestur frost í jörð.
Ást þín var mínu unga hjarta
eins og blátær lind
þar sem á náttmálum þorsta svalar
hin þreytta skógarhind.
Um þig geymist í muna mínum
minning björt og hrein,
eins og merli í mánaskini
mjöll á furugrein.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message