Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir |
|
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð. |
|
Ísland er landið, sem ungan þig dreymir. |
|
Ísland í vonanna birtu þú sérð. |
|
Ísland í sumarsins algræna skrúði, |
|
Ísland með blikandi norðljósatraf. |
|
Ísland, er feðranna afrekum hlúði. |
|
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf. |
|
|
Íslensk er þjóðin, sem arfinn þinn geymir. |
|
Íslensk er tunga þín skír eins og gull. |
|
Íslensk sú lind, sem um æðar þér streymir. |
|
Íslensk er vonin af bjartsýni full. |
|
Íslensk er vornóttin albjört sem dagur. |
|
Íslensk er lundin með karlmennsku þor. |
|
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur. |
|
Íslensk er trúin á frelsisins vor. |
|
|
Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma. |
|
Íslandi helgar þú krafta og starf. |
|
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma |
|
íslenska tungu, hinn dýrasta arf. |
|
Ísland sé blessað um aldanna raðir, |
|
íslenska moldin, er lífið þér gaf. |
|
Ísland sé falið þér, eilífi faðir. |
|
Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf. |
|