Ég skrifa þér með blýant, því blek er ekki til |
|
og blaðið það er krypplað og jósið er að deyja. |
|
En þegar þú færð bréfið þá veistu hvað ég vil |
|
og veist að ég er heima og á náttkjól meira segja. |
|
|
Ég svík þig ekki vinur og sendi þetta bréf |
|
til að sýna þér að ég er hvorki hrædd við þig né gleymin. |
|
Til að segja, til að segja,til að segja að ég sef |
|
undir súðinni fyrir norðan, ég er svo voðalega feimin. |
|
|
Í guðsbænum þú verður að ganga ósköp hljótt |
|
og gæta vel að öllu, hvort nokkur fari um veginn. |
|
Læðstu inn um hliðið þegar líða fer á nótt |
|
og læðstu upp að húsinu eldhúsdyra megin. |
|
|
Beint á móti uppgöngunni eru mínar dyr |
|
elsku vinur hægt,hægt svo stiginn ekki braki |
|
og þó þú hafir aldrei,aldrei farið þetta fyrr |
|
þá finn ég að þú kemur ... og hlusta, bíð og vaki. |
|
|
Gættu því að strjúka ekki stafnum þínum við |
|
og stígðu létt til jarðar og mundu hvað ég segi. |
|
Það iðka sjáfsagt margir þennan ævintýrasið |
|
sem aldrei geta hist þegar birta fer að degi. |
|
|
Opnaðu svo hurðina hún er ekki læst |
|
hægt elsku vinur það er sofið bakvið þilið. |
|
Í myrkrinu, í myrkri geta margir hlutir ræst |
|
og mér finnst líka við eiga það skilið. |
|
|
Ég veit að þú ert góður og gætir vel að þér |
|
og gengur hægt um dyrnar, farðu helst úr skónum. |
|
Þá er engin hætta þú mátt trúa mér |
|
þey ... þey ... húsið er fullt af gömlum ljónum. |
|
|
Það grunar engan neitt svona í allra fyrsta sinn |
|
og engum nema þér skal ég gefa blíðu mína |
|
og þó að ég sé feimin þá veistu vilja minn |
|
|
|
|