Ég vakna oftast þreyttur, varla með sjálfum mér, |
|
en ég veit það er til annað líf en það sem ég lifi hér, |
|
og þrá mín hún vakir meðan þokan byrgir mér sýn, |
|
mig þystir í eitthvað annað en gúanó, tékka og vín. |
|
|
Á fiskinum lifir þorpið, þorskurinn er fólkinu allt, |
|
það þrælar alla vikuna, vaðandi slor og salt. |
|
Við færibandið standa menn en þeir finna þar enga ró |
|
flestir þeir ungu komnir suður þar sem af draumunum er nóg. |
|
|
|
Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegnum allt. |
|
|
Kannski var öllum öðrum hlýtt, en mér var allavegana kalt |
|
|
Það biðu allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng |
|
|
bátarnir lágu tómir við kajann, í kinnungunum söng. |
|
|
Faðir minn átti drauma sem dóu fyrir lítið fé. |
|
Mig dreymdi um að verða að manni en ég náði honum aðeins í kné. |
|
Ég gleymdi seint þeim augum, gínandi botnlaust tóm, |
|
gamall maður fyrir aldur fram með brostinn hrjúfan róm. |
|
|
Þegar ég var rétt orðinn sautján um sumarið barst mér frétt, |
|
að sæta dúkkan hans Bensa í Gröf væri orðin kasólétt. |
|
Næturnar urðu langar og nagandi ótti með |
|
negldur ég gat ekki tekið til baka það sem hafði skeð. |
|
|
|
Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegnum allt. |
|
|
Kannski var öllum öðrum hlýtt, en mér var allavegana kalt |
|
|
Það biðu allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng |
|
|
bátarnir lágu tómir við kajann, í kinnungunum söng. |
|
|
Aldrei fór ég suður, alltaf skorti mig þor. |
|
Hvert einasta sumar var því frestað, svo kom haust og svo vetur og vor. |
|
Nú er ég kominn á planið og ég pæli ekki neitt, |
|
ég pækla mínar tunnur - fyrir það ég fæ víst greitt. |
|
|
Ég hugsa oft um börnin mín, bráðum kemur að því |
|
að þau bíða ekki lengur, þau fara, hér er ekkert sem heldur í. |
|
Enn koma tómir bátarnir og bræðslan stendur auð. |
|
Baráttan er vonlaus, þegar miðin eru dauð. |